Íslensk yfirvöld taka það ekki að sér að flytja fólk frá hættulegum stöðum. Því þarft þú að ferðast til íslands á eigin vegum til að fá hæli hér á landi.
Þar sem Ísland er eyja getur þú komist til landsins á tveimur vegum, í flugvél eða á ferju.
Að ferðast með ferju getur verið dýrt og tekur langan tíma, þannig best er að nýta sér vinsælasta ferðamátann – að ferðast með flugi.
Ódýrustu flugfélögin sem fljúga frá löndum við landamæri Úkraínu:
WizzAir ✈️
⚠️ Tímabundið tilboð! Ungverska flugfélagið hefur tilkynnt að þeir muni bjóða Úkraínumönnum björgunarmiða. Verðið á björgunarmiðunum fyrir Úkraínumenn með erlent vegabréf er 💶 69.99 evrur aðra leiðina, þar með talin þjónustugjöld. Innifalið í verðinu er ein handfarangurstaska (hámark: 40x30x20 cm). Gilt Úkraínskt alþjóðlegt vegabréf er nauðsynlegt fyrir bókun og innritun. Viðskiptavinir sem eiga ekki gilt vegabréf þurfa að greiða fullt gjald á flugvellinum.
⚠️ Verðin gilda aðeins ef bókað er í gegnum þennan hlekk: https://wizzair.com/#/rescue
Brottferðir frá:
- Pólandi
- Varsjá WAW: Brottferðir 3 í viku. Miðaverð 70-150 evrur (án farangurs)
- Gdańsk GDN: Brottferðir 2 í viku. Miðaverð 70-150 evrur (án farangurs)
- Katowice KTW: Brottferðir 2 í viku. Miðaverð 50-150 evrur (án farangurs)
- Kraków KRK: Brottferðir 2 í viku. Miðaverð 50-150 evrur (án farangurs)
- Wroclaw WRO: Brottferðir 2 í viku. Miðaverð 50-150 evrur (án farangurs) ⚠️ Það eru nánast engir miðar eftir fyrir mars.
- Ungverjaland
- Búdapest BUD: Brottferðir 2 í viku. Miðaverð 150-250 evrur (án farangurs)
- Litháen
- Vilníus VNO: Brottferð einu sinni í viku. Miðaverð 50-150 evrur (án farangurs)
AirBaltic ✈️
Brottferðir frá:
- Litháen
- Vilníus VNO: Brottferðir 5 sinnum í viku. Miðaverð 170-370 evrur.
- Lettland
- Ríga RIX: Brottferðir 3 í viku. Miðaverð 150-370 evrur.
Þetta er listin yfir vinsælustu og ódýrustu flugvellina í evrópu sem eru með flug til Reykjavíkur.
Þú getur einnig notað vinsælar flugleitarsíður eins og Kiwi.com.